Uppskeruhátíð og aðalfundur sunddeildar

Uppskeruhátíð Sunddeildar Tindastóls verður haldin á morgun miðvikudag 9. febrúar klukkan 18.00 á Mælifelli.  Á uppskeruhátíðinni verða veitt ýmiss verðlaun fyrir árangur á árinu 2010 m.a. titillinn sundmaður ársins. 

Öllum iðkendum verður afhent gjöf frá deildinni og veittar verða góðgerðir s.s. pizzur og gos. Í lok uppskeruhátíðarinnar verður haldinn aðalfundur Sunddeildarinnar fyrir árið 2010.  

Börn og foreldrar eru hvattir til að fjölmenna á Mælifell.

Fleiri fréttir