Uppskeruhátíð Þyts og Hrossaræktarsamtaka Vestur Húnavatnssýslu

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur - Húnavatnssýslu og hestamannafélagsins Þyts var haldin sl. laugardagskvöld. Veittar voru viðurkenningar fyrir 3 stigahæstu hross í öllum flokkum, ræktunarbú ársins og hæst dæmda hryssan og hæst dæmdi stóðhesturinn á árinu fengu farandbikara, af Hrossaræktarsamtökunum og síðan fengu stigahæstu knapar sínar viðurkenningar.

 

  • Knapi ársins 2011 er Tryggvi Björnsson.
  • Stigahæsti knapi ársins í 2. flokk er Vigdís Gunnarsdóttir.
  • Stigahæsti knapi í ungmennaflokki er Jónína Lilja Pálmadóttir
  • Ræktunarbú ársins 2011 er Grafarkot

 

Þá var uppskeruhátíð barna og unglinga haldið fyrr um daginn

Þar var farið yfir starf ársins, sem var að venju mikið og skemmtilegt, en alls voru 60 börn sem tóku þátt í starfinu. Tóku þau þátt í ýmsum mótum, m.a. Grunnskólamóti sem æskulýðsnefndir hestamannafélaganna á Norðurlandi vestra standa að, Sparisjóðsliðakeppni Þyts og svo félagsmótum. Þrjú börn og þrír unglingar fóru á Landsmót og komst eitt þeirra í A-úrslit í barnaflokki.

 

  • Knapi ársins í barnaflokki var Viktor Jóhannes Kristófersson:
  • Knapi ársins í unglingaflokki var Helga Rún Jóhannsdóttir.
  • Viðurkenningar voru veittar fyrir þátttöku í starfinu í vetur og fylgja hér myndir af krökkunum.

/Þytur

Fleiri fréttir