Uppskeruhátíð yngri flokkanna í dag

Unglingaráð körfuknattleiksdeildar Tindastóls heldur sína árlegu uppskeruhátíð fyrir yngri flokkana í dag miðvikudaginn 27. apríl, í íþróttahúsinu kl. 16.30. Á hátíðinni verða verðlaun veitt og viðurkenningar.

Í þeim flokkum sem tóku þátt í Íslandsmótinu, verður leikmaður ársins útnefndir, sömuleiðis sá leikmaður sem mestar framfarir hefur sýnt og þriðju verðlaunin eru verðlaun fyrir áhuga og ástundun.

Þá fá allir iðkendur í minnibolta og míkróbolta, þátttökuviðurkenningar. Búast má við að eitthvað gott komi af grillinu fyrir alla sem mæta. Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að láta sjá sig.

Keppnistímabilinu lýkur formlega 30. apríl, en sumarprógrammið mun strax taka við 1. maí og verða æfingatímar og fyrirkomulag kynnt í vikunni.

Fleiri fréttir