Urðarköttur vann til sjö fyrstu verðlauna

Fyrirtækið Urðaköttur á Skörðugili í Skagafirði vann til sjö fyrstu verðlauna á íslensku skinnasýningunni sem haldin var innan Alþjóðlegu skinna- og tækjasýningarinnar í Herning i Danmörku á dögunum.
Að sögn Einars Einarssonar hjá Urðarketti hafa íslenskir loðdýrabændur undanfarin ár kosið að halda sína skinnasýningu á þessari alþjóðlegu sýningu. Samhliða geta íslenskir bændur líka sett skinn inn á alþjóðlegu skinnasýningunni, en Einar segist ekki hafa tekið þátt í henni þetta árið.
Keppnin byggist á því að þeir loðdýrabændur sem taka þátt leggja fram búnt með þremur skinnum í hvern litaflokk sem þeir kjósa að taka þátt í, en alls var keppt í 23 litaflokkum í ár. Veitt eru þrenn verðlaun í hverjum flokki. Einar var að vonum ánægður með árangur Urðarkattar, enda var fyrirtækið með flest fyrstu verðlaun á sýningunni.
Einar segir talsverða vinnu að taka þátt í sýningu af þessu tagi, því vanda þurfi valið úr framleiðslu ársins, en það er gert þegar skinnum er pakkað til sendingar á uppboð. Þó sé sú æfing sem fæst við að velja bestu skinnin mikilvæg fyrir bændurna og skili sér inn í kynbótastarfið bætta framleiðslu búanna.
Einar segir skinnin á íslensku sýningunni hafa verið stærri og betur meðhöndluð en nokkru sinni fyrr. Sömuleiðis hafi verið áhugavert að sjá dönsku skinnasýninguna og annað sem til sýnis var í Herning þessa daga.
Auk Urðarkattar tóku þrjú önnur loðdýrabú í Skagafirði þátt í íslensku skinnasýningunni í ár og náðu, að sögn Einars góðum árangri.