Úrslit í firmakeppni Stíganda
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
31.07.2015
kl. 13.04
Firmakeppni Stíganda fór fram í góðu veðri á Vindheimamelum á miðvikudagskvöldið 29. júlí sl. Það var fínasta þátttaka og létt yfir fólki og málleysingjum. Dómnefndin, sem var skipuð Agnari á Miklabæ, Immu á Reykjarhóli og Óla á Grófargili, komst að eftirfarandi niðurstöðu:
Pollaflokkur
1.Trausti Ingólfsson á Ljósku frá Borgareyrum-8v. Keppti fyrir Bakkaflöt
- Matthildur Ingimarsdóttir á Golu frá Flugumýri-15v.
- Sigrún Sóllilja Eyþórsdóttir á Rakel frá Syðra-Skörðugili-8v.
Barnaflokkur
- Björg Ingólfsdóttir á Morra frá Hjarðarhaga-11v. Keppti fyrir Sel ehf.
- Guðný Rúna Vésteinsdóttir á Þrumu frá Hofsstaðaseli-7v.
- Jón Hjálmar Ingimarsson á Svölu frá Flugumýri -7v.
Unglingaflokkur
- Sæþór Már Hinriksson á Hnokka frá Syðstu-Grund-7v. Keppti fyrir Íbishól
- Ingunn Ingólfsdóttir á Anítu frá Kjartansstaðakoti - 7v.
- Herjólfur Hrafn Stefánsson á Alpadís frá Síðu-6v.
Kvennaflokkur
- Eva Dögg Sigurðardóttir á Stíganda frá Sigríðarstöðum-8v. Keppti fyrir Miklabæ
- Birna M. Sigurbjörnsdóttir á Gamm frá Enni - 8v.
- Sonja S. Sigurgeirsdóttir á Víking frá Varmalandi - 7v.
Karlaflokkur
- Jón Helgi Sigurgeirsson á Töfra frá Keldulandi - 14v. Keppti fyrir Hjaltastaði
- Gestur Stefánsson á Varma frá Höskuldsstöðum - 10v.
- Pétur Örn Sveinsson á Greip frá Sauðárkróki - 6v.
Heldriflokkur
- Björn Sveinsson á Koltinnu frá Varmalæk - 7v.
- Þórey Helgadóttir á Tóni frá Tunguhálsi 2 - 13v.
- Jónína Stefánsdóttir á Frostrós frá Stóru-Gröf - 8v.