Úrslit í stærðfræðikeppni

Stærðfræðikeppni 9. bekkinga grunnskólanna beggja vegna Tröllaskaga var haldin mánudaginn 13.maí á vegum FNV og Menntaskólans á Tröllaskaga. Egill Örn Ingibergsson úr Höfðaskóla á Skagaströnd sigraði keppnina, í öðru sæti varð Sigfinnur Andri Marinósson Varmahlíðarskóla og Karl Vernharð Þorleifsson Dalvíkurskóla hafnaði í þriðja sæti.

Undankeppni fór fram um miðjan apríl og tóku 127 nemendur þátt í henni. Fimmtán nemendur úr sex skólum komust í úrslit og var þeim boðið til þátttöku í aðalkeppninni.

Stærðfræðikeppnin er samstarfsverkefni MTR og FNV, grunnskóla, stofnana og fyrirtækja á Norðurlandi vestra auk þess sem fyrirtæki utan kjördæmisins koma að verkefninu. Kennarar í stærðfræði við MTR og FNV báru hitann og þungann af samningu og yfirferð keppnisgagna, en grunnskólarnir sáu um fyrirlögn dæmanna í undankeppninni.

Verðlaunin voru vegleg, en í fyrstu verðlaun voru spjaldtölva, reiknivél, gjafabréf frá Levi´s, heyrnartól og mús, gjafabréf, minnislykill og 10.000 króna peningaverðlaun.

Auk þeirra fyrirtækja sem gáfu verðlaun styrktu eftirtaldir keppnina með fjárframlögum:

Blönduósbær
Fjallabyggð
Húnaþing vestra
Sveitarfélagið Skagaströnd
Sveitarfélagið Skagafjörður
Arionbanki
Landsbankinn
Sparisjóður Skagafjarðar

Fleiri fréttir