Úrslitaleikirnir í Lengjubikarnum fara fram á Selfossi
Í frétt á vef KKÍ er sagt frá því að búið er að breyta leikstað undanúrslita og úrslita Lengjubikarsins 2015 en til stóð að karlaleikirnir yrðu spilaðir á Sauðárkróki. Undanúrslit kvenna fara fram í TM-höllinni í Keflavík og undanúrslit karla og úrslitaleikirnir verða í íþróttahúsinu Iðu á Selfossi.
Í fréttinni segir: -Þegar ljóst var að Tindastóll ætti ekki lið í úrslitunum né annað lið af svæðinu töldu forráðamenn Tindastóls og KKÍ það best fyrir körfuknattleikinn í landinu að úrslitin fari fram á suðvesturhorni landsins þar sem að öll liðin koma þaðan.
KKÍ og félögin sem taka þátt í úrslitum Lengjubikarins þakka Tindastól fyrir þá vinnu sem þeir höfðu farið í vegna úrslitanna sem og þann skilning að best sé fyrir úrslit Lengjubikarsins að þau fari fram á suðvesturhorninu að þessu sinni.-