Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sameiningar hafin
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna kosninga um sameiningu sveitarfélaganna Bæjarhrepps og Húnaþings vestra er hafin en sjálfar kosningarnar fara fram laugardaginn 3. desember 2011.
Fram kemur í Sjónaukanum að vegna utankjörfundaratkvæðagreiðslunnar hefur Helena Halldórsdóttir verið skipuð hreppsstjóri í Húnaþingi vestra. Utankjörfundaratkvæðagreiðslan fer fram hjá sýslumanninum á Blönduósi, Hnjúkabyggð 33, en þar er opið frá kl. 9-15 eða eftir nánara samkomulagi. Einnig er hægt er að kjósa utan kjörfundar hjá öllum sýslumannaembættum landsins.
Ef óskað er eftir atkvæðagreiðslu í heimahúsi vegna sjúkdóms, fötlunar eða barnsburðar skal beiðni þess efnis berast ekki síðar en kl. 16, fjórum dögum fyrir kjördag.
Almennir kynningarfundir um tillögu að sameiningu sveitarfélaganna verða haldnir á morgun, þriðjudaginn 22. nóvember á eftirfarandi stöðum:
Í skólahúsinu á Borðeyri kl. 16:00.
Í Félagsheimilinu Hvammstanga kl. 20:00.