Úthlutun byggðakvóta mótmælt

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd hefur mótmælt harðlega niðurstöðum úthlutunar byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2016-2017. Niðurstaða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis hvað Skagafjörð varðar var sú að úthluta nítján þorskígildistonnum til Hofsóss en engum byggðakvóta til Sauðárkróks.

Í fundargerð nefndarinnar frá 10. nóvember kemur fram að nefndinni hafi borist borist rökstuðningur ráðuneytisins fyrir úthlutuninni. Þar segir ennfremur:
„Niðurstaða þessi er með öllu óásættanleg og ljóst að reglur um úthlutun byggðakvóta mæta engan veginn tilgangi þess að úthluta byggðakvóta til byggðarlaga sem standa höllum fæti, s.s. eins og til Hofsóss. Þá er með engu móti hægt að sjá hvernig aukin veiði á rækju hefur með veiðar smábáta frá Sauðárkróki að gera.Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd skorar á sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að breyta nú þegar reglum um úthlutun byggðakvóta og úthluta kvótanum að því loknu á grundvelli nýrra reglna um byggðakvóta sem raunverulega ná því markmiði að styðja við veikari byggðir landsins.“

Fleiri fréttir