Útibúi Sauðárkróksbakarís í Varmahlíð vel tekið

Í júní opnaði Sauðárkróksbakarí útibú í húsnæði Arionbanka í Varmahlíð. Að sögn Róberts Óttarssonar, eiganda Sauðárkróksbakarís, hafa viðtökur verið frábærar, ekki síst hjá íbúum í Varmahlíð og nærsveitum. Hann segir aðdragandann hafa verið stuttan en helsti þröskuldurinn í veginum fyrir því að opna ennþá fyrr hafi verið að finna fólk til starfa.
„Þessi hugmynd hafði blundað með okkur nokkuð lengi en þarna gafst tækifæri,“ segir Róbert, aðspurður um hvernig sú hugmynd hefði kviknað að opna útibú í Varmahlíð. Hann rifjar reyndar upp að á sínum tíma hafi verið útibú á Blönduósi og gengið ágætlega, en þó verið ákveðið að loka því aftur. „Enda er eðlilegra að Sauðárkróksbakarí sé með útibú í Varmahlíð en á Blönduósi,“ segir Róbert m.a. í spjalli í nýjasta tölublaði Feykis.