Útileikur við Fjölni í kvöld -Sannkallaður fjögurra stiga leikur
Strákarnir í meistaraflokk Tindastóls í körfubolta halda suður yfir heiðar í dag. Verkefnið er verðugt, annars vegar að tryggja sæti liðsins í deildinni og hins vegar að stíga skrefi nær úrslitakeppninni. Fjölnismenn eru á svipuðum buxum og því er ljóst að í kvöld verður um svakalega rimmu að ræða.
Í síðustu umferð unnu Fjölnismenn góðan útisigur á KFÍ, á meðan Tindastóll tapaði heima fyrir KR í hörkuleik. Við þau úrslit varð aðeins einn leikur á milli þessara liða, Tindastóll situr í 9. sæti með 14 stig en Fjölnismenn eru sæti neðar með 12 stig.
Í leik liðanna í nóvember, sigraði Tindastóll 91-81.
Fjölnismenn hafa undanfarið skipt ört um erlendan leikmann. Ben Stywall lék 11 leiki með liðinu, þá kom Brandon Springer til sögunnar og lék 7 leiki, en í dag er kominn mikill bolti í teiginn, Brandon Brown. Hann fengu Fjölnismenn að eigin sögn til að stoppa í götin í teignum og lofar kappinn sá góðu eftir leik þeirra við KFÍ á dögunum. Þar skoraði hann 27 stig og tók 14 fráköst.
Á sama tíma og Fjölnir og Tindastóll kljást í Dalhúsum, taka Hamarsmenn á móti ÍR-ingum í Hveragerði. Sá leikur getur verið afdrifaríkur fyrir Tindastól fyrir margra hluta sakir einnig svo jöfn er staðan í deildinni.
En sigur lyftir okkar mönnum klárlega upp úr bráðri fallhættu og skrefi nær úrslitakeppninni og núna verða stuðningsmenn okkar syðra að fjölmenna í Grafarvoginn og gefa strákunum allt sem þarf til að fara með sigur af hólmi. Fyrir okkur sem heima sitjum, verður leikurinn sýndur beint á netinu af heimasíðu Fjölnis
Tindastoll.is