Valdi og Ingunn sigruðu Söngvarakeppnina

Söngvarakeppni Húnaþings vestra fór fram í Félagsheimilinu Hvammstanga á laugardagskvöldið. Það voru þau Ingunn Elsa Rafnsdóttir og Valdimar Gunnlaugsson sem báru sigur úr býtum í keppninni, en þau sungu lagið Where the wild roses grow sem er þekktast í flutningi Nick Cave og Kylie Minogue.

Í öðru sæti hafnaði Anna Elísabet Gestsdóttir sem söng lagið Nú brennur tú í mær sem er eftir Eivør Pálsdóttur. Það var svo Kristrún Kristjánsdóttir sem varð í þriðja sæti með lagið Forget you sem Cee Lo Green gerði vinsælt.

Einnig var verðlaunað fyrir bestu sviðsframkomu og bestu búningana. Diskódísir fengu verðlaun fyrir sviðsframkomu og Tómas Örn Daníelsson fyrir búninga.

Alls voru það 13 atriði sem tóku þátt og var þema keppninnar "Uppáhalds lagið mitt".

/Norðanátt.is

Fleiri fréttir