Vandamál vegna forverðmerkinga

Þann 1. mars s.l. tóku gildi breytingar á verðmerkingum á ýmsum kjötvörum í matvöruverslunum sem fólust í því  að kjötvinnslufyrirtæki hætta að forverðmerkja fyrir matvöruverslanir pakkningar í staðlaðri þyngd, þ. á m. flestar tegundir af pylsum, tilbúnum réttum og flestar áleggstegundir.

Þann 1. júní nk. mun hið sama gilda um kjötvörur sem ekki eru í staðlaðri þyngd, s.s. lambalæri, kjúklingabringur í bakka o.fl. Frá þessu tímamarki mun forverðmerking kjötvara því heyra sögunni til að mestu leyti.

Ófullnægjandi verðmerkingar víða
Á heimasíðu Neytendasamtakanna segir að þessar breytingar hafi lengi legið ljósar fyrir og öllum verslunum verið kunnugt um þær. Það vekur því furðu Neytendasamtakanna hvernig staðið er að málum í sumum verslunum, en samtökunum hafa borist mjög margar kvartanir um að verðmerkingar séu ófullnægjandi í mörgum verslunum. Jafnvel svo að útilokað er fyrir neytandann að átta sig á endanlegu söluverði fyrr en komið er á afgreiðslukassa. Slíkt er að sjálfsögðu brot á reglum um verðmerkingar og algerlega óásættanlegt.

Árni Kristinsson verslunarstjóri Skagfirðingabúðar á Sauðárkróki er ekki ánægður með nýtt fyrirkomulag og telur þessa nýju reglugerð ekki til bóta fyrir neytendur og telur marga  viðskiptavini sömu skoðunar. Telur Árni þetta síst til þess fallið að vernda neytendur við of háu verði. Skönnum mun verða komið fyrir í Skagfirðingabúð eins og reglur hveða á um innan tíðar og allt verði gert til þess að gera viðskiptavinum til hæfis þegar athuga þarf hvað varan kostar.

Fleiri fréttir