Vantaði þig ekki einmitt kanilsykur?

Ungir frumkvöðlar á Norðurlandi ætla að sýna vörur sínar á Akureyri á morgun og meðal þátttakenda eru þrír nemendur Verkmenntaskólans á Akureyri af Norðurlandi vestra. Þau heita Hjalti Arnarson frá Sauðárkróki, Margrét Árnadóttir frá Hofsósi og forstjóri fyrirtækisins,  Hólmfríður Lilja Birgisdóttir frá Blönduósi og öll stunda þau nám í frumkvöðlafræði við skólann.

Hólmfríður Lilja Birgisdóttir frá Blönduósi forstjóri Sacco jai. Mynd: VMA.

Hjalti segir að áfanginn snúist um að finna vöru eða þjónustu og framleiða hana. -Fyrirtækið okkar heitir Sacco jai og er okkar hópur að búa til tilbúinn kanilsykur í dós. Núna á laugardaginn þann 20. apríl verður haldin vörumessa þar sem nemendur í Verkmenntaskólanum á Akureyri og Menntaskólanum á Akureyri í þessum áfanga kynna sínar vörur. Það var svona vörumessa í Smáralindinni í mars en vegna veðurs og fleiri ástæðna komust skólarnir ekki suður og því er haldin vörumessa hér á Akureyri, segir Hjalti.

HÉR er hægt að skoða myndir frá verkefni þeirra Hjalta, Margréti og Hólmfríðar Lilju.

Fleiri fréttir