Varasamur tölvupóstur vegna Netbanka

Lögreglan varar við pósti sem nokkrum viðskiptavinum Íslandsbanka fóru að berast í morgun, þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka í gegnum þá vefslóð sem gefin er upp í póstinum. Efni póstsins (subject) er: „Staðfesting... reiknings Alerts“

Pósturinn sem um ræðir er ekki frá Íslandsbanka heldur frá tölvuþrjótum sem vilja með þessu reyna að komast yfir notendanafn, lykilorð og aðrar upplýsingar um notendur Netbankans. Þeir sem hafa smellt á slóðina eru hvattir til að fara sem allra fyrst inn í Netbankann sinn í gegnum www.islandsbanki.is og breyta lykilorðinu.

Í póstinum frá tölvuþrjótunum er hlekkur sem lítur út fyrir að vera að vísa á vefsíðu Íslandsbanka en þegar hlekkurinn er opnaður er komið inn á vef sem lítur út eins og innskráningarsíða netbankans en umrædd síða er hýst út í heimi. Hafi einhverjir viðskiptavinir smellt á hlekkinn í tölvupóstinum eru þeir hvattir til þess að skipta um lykilorð í Netbanka, sjá nánari upplýsingar á heimasíðu Íslandsbanka undir Netlausnir/Öryggi.

Viðskiptavinum er eftir sem áður óhætt að tengjast Netbanka í gegnum vefsíðu Íslandsbanka, www.islandsbanki.is.

Fleiri fréttir