Varnarleikur, fráköst og tapaðir boltar skipta sköpum
Það er ekkert að flækjast fyrir Karli Jónssyni með hverjum á að halda í einvígi Tindastóls og KR um Íslandsmeistaratitilinn. KR-baninn lauflétti hefur lengi verið viðriðinn körfuboltann og meðal annars leikið með og þjálfað lið Tindastóls frá unga aldri. Kalla líst alveg frábærlega á komandi rimmu liðanna.
Hvernig líst þér á viðureign KR og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn? - Mér líst alveg frábærlega á þessa viðureign. Hún hefur í raun verið skrifuð í skýin í allan vetur og miðað við það hvernig tímabilið þróaðist er þetta rökrétt niðurstaða. Held að allir körfuboltaáhugamenn hvar í flokki sem þeir standa, geti tekið undir þetta.
Hvað hefur glatt þig mest í leik Tindastóls í vetur? - Það er margt sem hefur glatt mig í leik Tindastóls í vetur. Í fyrsta lagi samsetningin á leikmannahópnum. Hún er afar heppileg, góð blanda af ungum, miðaldra og öldruðum leikmönnum sem gerir gott jafnvægi í liðinu hvað leikreynslu og ungæðishátt varðar.
Þá er afar gaman að sjá ungu strákana sem hafa verið að fá aukna ábyrgð og standa fyllilega undir henni. Það er ekki amalegt fyrir þá að fá að stíga sín fyrstu skref í alvöru körfubolta undir verndarvæng og leiðsögn eldri leikmannanna.
Þá má ekki gleyma þætti þjálfunarteymisins hann er gríðarstór. Israel Martín hefur sannað sig rækilega sem toppþjálfari. Það er gaman að sjá hvernig hann nálgast verkefnið, hann er hér til að hjálpa segir hann, hann leikgreinir andstæðinga Tindastóls í ræmur og þó langir videofundir geti verið þreytandi, þá held ég að það skili sér allt núna í úrslitakeppninni.
En þarna hafa TIndastólsmenn hitt á mjög færan þjálfara sem vonandi verður sem lengst á Króknum.
Hvernig spáir þú að einvígið fari? -Ég er nánast aldrei spámannlega vaxinn og ætla ekki að hætta mér út á þá braut núna. En það eru ákveðnir þættir sem þurfa að vera til staðar í svona seríu sem skera úr um meistarana. Það er varnarleikur og fráköst og tapaðir boltar. Bæði lið geta spilað frábæra vörn. Stólarnir hafa fengið á sig 84 stig og KR tæp 82. Stærsta von Tindastóls felst í því að halda KR í kringum 80 stigin. Fráköst og tapaðir boltar skipta sköpum og ef Stólarnir vinna þá grunnvinnu sem þarf til að hafa þetta í lagi þá eiga þeir góðan séns. Njarðvíkingar hafa örugglega blásið Tindastólsmönnum von í brjóst eftir oddaleikinn sem þeir í rauninni köstuðu frá sér sjálfir á lokametrunum.