Vefjagigtarfræðsla með líkamsstöðugreiningu

Í kvöld hefst vegum Þreksports á Sauðárkróki námskeið um greiningu, orsakir og helstu meðferðarúrræði við vefjagigt. Fræðslan skiptist á þrjú kvöld. Guðrún Helga ÍAK einkaþjálfari og Sigurveig Dögg sjúkraþjálfari leiðbeina á námskeiðinu.

Fyrsta kvöldið verður farið yfir hvað vefjagigt er, greiningu, einkenni og helstu orsakaþætti, eðli verkja, verkjakveikjur og líkamsstöðu. Annað kvöldið verður fjallað um andlegu hliðina, streitustjórnun, slökun, orkusparnað, hvíld, næringu og svefn. Þriðja og síðasta kvöldið verður svo rætt um líkamsþjálfun, að lifa með langvinnum sjúkdómi og markmiðasetningu.

Að auki framkvæmir Guðrún Helga líkamsstöðugreiningu á þeim sem óska eftir því, bendir á úrbætur á líkamsstöðu og leiðbeinir með val á æfingum í kjölfarið. Námskeiðið fer fram í Rauða kross húsinu á Sauðárkróki og frítt er fyrir maka á fyrirlestrana þrjá.

Vakin er athygli á því að Aldan, starfsmannafélag Skagafjarðar og Verslunarmannafélagið niðurgreiða að lágmarki 50% af þátttökugjaldi.

Fleiri fréttir