Friðarganga í sunnanroki

Göngufólk komið að rótum Kirkjustígsins. MYNDIR: ÓMAR BRAGI
Göngufólk komið að rótum Kirkjustígsins. MYNDIR: ÓMAR BRAGI

Árleg friðarganga Árskóla á Sauðárkróki fór fram í morgun en það verður kannski ekki sagt að nemendur hafi verið heppnir með veður því það blés hraustlega að sunnan eða um 16 m/sek en hitinn var um 5 gráður. Að sjálfsögðu lét göngufólk veðrið ekki skemma fyrir sér fallega göngu og nú skín krossinn hlýlega yfir gamla Króknum.

Nemendur og starfsfólk lagði af stað frá Árskóla kl. 8:30 og gekk að Sauðárkrókskirkju. Þaðan lá leiðin upp Kirkjustíginn að ljósakrossinum þar sem kveikt var á honum. Að því loknu hélt hersingin aftur að skólanum þar sem boðið var upp á heitt kakó og piparkökur.

Feykir fékk lánaðar myndir af Skín við sólu.

Fleiri fréttir