Vel sóttir tónleikar Sóldísar
Kvennakórinn Sóldís í Skagafirði hélt sína árlegu konudagstónleika í gær í Menningarhúsinu Miðgarði og var þáttur kvenna gerður hátt undir höfði í efnisskránni. Þar komu þær við sögu á einn eða annan hátt með lög, ljóð eða útsetningar eða þá að sungið var um konur.
Lagaval kórsins var fjölbreytt en alls voru sautján lög víða að úr heiminum á efnisskránni og settu kórkonur það ekki fyrir sig að syngja á ensku, sænsku, frönsku eða finnsku auk hins ástkæra ylhýra. Áhorfendur fylltu salinn og voru vel með á nótunum enda var kórinn klappaður upp hvað eftir annað og voru þá dregin fram fleiri lög en efnisskráin sagði til um.
Tónleikarnir voru vel sóttir og féllu áhorfendum vel sem klöppuðu kórnum lof í lófa hvað eftir annað.
Að loknum tónleikum var slegin upp stórveisla með kökum og tertum af öllum stærðum og gerðum sem áhorfendur gerðu góð skil.
Í kórnum eru um fjörtíu konur, flestar úr Skagafirði en einnig úr Húnavatnssýslu. Söngstjóri kórsins er Sólveig S. Einarsdóttir og undirleikari Rögnvaldur Valbergsson.