Vélsleðaslys í Unadal
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út kl. 16:05 í dag eftir að tilkynning barst um vélsleðaslys í Unadal í Skagafirði. Maður ók vélsleða fram af hengju og fékk sleðann ofan á sig, samkvæmt heimildum Mbl.is.
Þyrlan fór í loftið kl. 16:30 og voru björgunarsveitir á svæðinu þá á leið á staðinn auk læknis á vélsleða. Þyrlan lenti við slysstað kl. 17:33 og hafði þá læknir búið um meiðsli hins slasaða. Maðurinn var fluttur um borð í þyrluna rétt fyrir kl. 18:00 en samkvæmt frétt Mbl.is var gert ráð fyrir að flogið hafi verið með hann á Landspítalann í Fossvogi.
Maðurinn, sem sagður er vera töluvert slasaður, var í æfingaferð sleðaflokka tveggja björgunarsveita í Skagafirði.