Vetrarleikar í Tindastól 2011

Vetrarleikar Tindastóls verða haldnir næstu helgi, 25-27. febrúar. Vetrarleikarnir hefjast næstkomandi föstudagskvöld með skrúðgöngu, sem hefst kl. 18.00.

Gengið verður frá íþróttahúsinu á Sauðárkróki að Kirkjutorgi. Á torginu verður tendraður varðeldur og gestir fá heitt kakó í boði Sauðárkróksbakarís. Síðan geta gestir gengið inn í Sauðárkrókskirkju þar sem dagskráin verður kynnt og Vetrarleikarnir settir. Í lokin verður skotið upp nokkrum flugeldum á Kirkjutorginu.

Við hvetjum Skagfirðinga og aðra gesti til að fjölmenna og taka þátt í skemmtilegri dagskrá.

Skíðasvæðið opnar bæði laugardag og sunnudag kl.10.00 og á laugardagsmorgun klukkan 11.00 verður fyrirkomulag leikanna kynnt. Dagskrá helgarinnar er fjölbreytt og skemmtileg en þar má nefna ævintýrabrautina og skíðaleika, þar sem foreldrar og börn keppa við hvort annað, sett verður upp brettaþraut og keppt verður í samhliðasvigi. Einnig verður farið í ævintýraferð út í óvissuna. Á laugardeginum mun Jóhann Bæring Gunnarsson halda námskeið í Carvingskíðun.

Á laugardagskvöldinu verður haldin kvöldvaka í Reiðhöllinni Svaðastöðum með tilheyrandi skemmtun, kvöldvakan hefst kl.19.30.

Þátttökugjald á leikunum eru kr.1.500,-

Þess ber að geta að Sundlaugin á Sauðárkróki verður opin á laugardaginn frá kl.10-16.00 og á sunnudaginn frá kl. 10-17.00.

Sjáumst hress um helgina!

Dagskrá Vetrarleikana:

Föstudagskvöld 25.02 - Skrúðganga kl. 18:00

Safnast saman norðan við Íþróttahúsið og gengið í skrúðgöngu í Sauðárkrókskirkju.

Setning Vetrarleikanna. vetrarleikabrenna, söngur og samvera.

Laugardagur 26.02 – Skíðasvæðið í Tindastól opnar kl.10.00

11.00 Fyrirkomulag leikanna kynnt

11.30 Ævintýrabrautin opnar

13.30 Hádegishlé

14.00 Ævintýraleikar halda áfram.

15.30 Ævintýraferð út í óvissuna.

10-12:00 Námskeið í Carvingskíðun með Jóhanni Bæring Gunnarssyni skíðakennara námskeiðsgjald 6.000 kr.

13-15.00 Námskeið í Carvingskíðun með Jóhanni Bæring Gunnarssyni skíðakennara. Námskeiðsgjald 6.000 kr.

Sundlaug Sauðárkróks er opin frá kl. 10-17.00

Kvöldvaka og skemmtun í Reiðhöllinni Svaðastaðir kl. 19.30.

Sunnudagur 27.02 - Skíðasvæðið opnar kl. 10.00

11.30 Skíðaleikar

 Samhliðasvig

 Grín og glens

 Foreldrar og börn keppa hvort við annað

 Brettaþraut.

Sundlaug Sauðárkróks er opin frá kl. 10-16.00

Skemmtum okkur saman um helgina, sjáumst hress og kát

Skíðadeild Tindastóls

Nánari upplýsingar hjá Viggó Jónssyni í síma 899 9073

Fleiri fréttir