Vetrarstarf að komast á fullt skrið
Vetrarstarf er að komast á fullt skrið hjá Körfuknattleiksdeild Tindastóls og hefur drengjaflokkurinn keppni í Íslandsmótinu um helgina. Míkróboltinn hefst að öllum líkindum í næstu viku og Körfuboltaskólinn hefur göngu sína þann 16. október.
Fram kemur á heimasíðu Tindastóls að drengjaflokkurinn heldur suður um helgina og spilar við Fjölni á laugardag og Skallagrím á sunnudag. Strákarnir eru í riðli með Breiðablik, ÍA, Skallagrím, Njarðvík, Val, Stjörnuna og KR. Hér má sjá nánari upplýsingar um stöðu mála hjá flokknum.
Körfubolti fyrir 1.-2. bekk, eða svokallaður Míkróbolti, hefst að öllum líkindum í næstu viku. Enn verið að ganga frá ýmsum lausum endum en upplýsingum verður dreift í viðkomandi bekki þegar allt er frá gengið. Körfuboltaskólinn mun hefja göngu sína sunnudaginn 16. október og verður hægt að sjá áætlun um starfsemi hans undir hér.