Viðrar vel til kosninga
Nú viðrar vel til kosninga um allt land og ætti kjörsókn því að vera í lagi þess vegna. Á Sauðárkróki sögðu þeir sem sátu í öndvegi á kjörstað að kjörsóknin væri ágæt það sem liðið væri kjördags, líkt og við síðustu alþingiskosningar. Þegar Feykir var á ferðinni um 13:30 var stöðugur straumur fólks að kjörstað, sem líkt og undanfarnar kosningar er í Bóknámshúsi FNV.
Alls eru tólf framboð sem bjóðast til að vinna fyrir okkur í Norðvesturkjördæmi, gott fólk sem er tilbúið að færa fórnir í þágu lands og þjóðar. Alls eru 21294 á kjörskrá í kjördæminu, 10919 karlar og 10375 konur.
Þeir pössuðu upp á að allt færi samkvæmt reglum, Reynir Kárason, Konráð Gíslason og Gunnar Sveinsson.
Norðvesturkjördæmi er stórt, nær frá Hvalfirði í suðri að Tröllaskaga í austri eða frá Akraneskaupstað til Akrahrepps í Skagafirði og hefur það sjö kjördæmissæti á að skipa og eitt jöfnunarsæti á Alþingi. Sveitarfélög í kjördæminu eru fjölmörg og hafa þingmenn í nógu að snúast eigi þeir að sinna þeim öllum eða þekkja þau í þaula og í raun varla hægt að ætla þeim það. Þau eru: Akraneskaupstaður, Hvalfjarðarsveit, Skorradalshreppur, Borgarbyggð, Eyja- og Miklaholtshreppur, Snæfellsbær, Grundarfjarðarbær, Helgafellssveit, Stykkishólmsbær, Dalabyggð, Reykhólahreppur, Vesturbyggð, Tálknafjarðarhreppur, Bolungarvíkurkaupstaður, Ísafjarðarbær, Súðavíkurhreppur, Árneshreppur, Kaldrananeshreppur, Strandabyggð, Húnaþing vestra, Húnavatnshreppur, Blönduósbær, Skagabyggð, Sveitarfélagið Skagaströnd, Sveitarfélagið Skagafjörður og Akrahreppur.