Vilja Alexandersflugvöll sem varaflugvöll
Lögð hefur verið fram tillaga, fimm alþingismanna í Norðvesturkjördæmi, til þingsályktunar um að Alexandersflugvöllur á Sauðárkróki verði gerður að varaflugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavíkurflugvöll og Akureyrarflugvöll og er því er beint til innanríkisráðherra að hann láti taka út kosti þess.
Flutningsmenn telja einsýnt að verulegur ávinningur gæti verið að því að byggja Alexandersflugvöll upp sem varaflugvöll fyrir Reykjavík og Keflavík, segir í greinargerð. Augljóst sé að slíkur flugvöllur mundi þjóna Akureyri vel sem varaflugvöllur og tryggja og treysta þá mikilvægu starfsemi sem þar er rekin í sambandi við ferðaþjónustu og flug almennt, segir þar ennfremur..
„Í ljósi þessa er því beint til ráðherra að ráðast í nauðsynlega undirbúningsvinnu og rannsóknir til að hægt sé að hrinda þessum hugmyndum í framkvæmd og er lagt til að ráðherra láti kanna kosti þess að gera Alexandersflugvöll á Sauðárkróki að varaflugvelli fyrir Keflavíkurflugvöll, Reykjavíkurflugvöll og Akureyrarflugvöll. Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður þeirrar könnunar eigi síðar en í september 2013,“ segir í greinagerð þeirra Gunnars Braga Sveinssonar, Ásmundar Einars Daðasonar, Ólínu Þorvarðardóttur, Einars K. Guðfinnssonar og Jóns Bjarnasonar, sem eru flutningsmenn tillögunnar.
Sjá nánar HÉR