Vilja auglýsa eftir dagmóður á Hofsósi

Fræðslunefnd Skagafjarðar hefur samþykkt að óska eftir því við félagsmálastjóra að auglýst verði eftir dagmóður til starfa á Hofsósi en biðlisti er eftir plássi við leikskólann Tröllaborg.

Jafnframt samþykkti nefndin að leita heimildar til að nota herbergi í dvalarheimilinu á Hofsósi fyrir leikskólann.

Á sama fundi var lagt fram erindi frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands vestra, þar sem gerðar eru nokkrar athugasemdir við húsnæði og lóð leikskólans Tröllaborgar á Hofsósi. Vegna þessa vill fræðslunefnd árétta að verið er að vinna að úrbótum á húsnæði og lóð umhverfis það

Fleiri fréttir