Vill að byggðaráð ræði hagvaxtartillögurnar
Sigurjón Þórðarson, sveitarstjórnarfulltrúi Frjálslyndra og óháðra í sveitarstjórn Skagafjarðar, hefur óskað eftir að byggðarráð ræði skýrslu samráðsvettvangs um aukna hagsæld (Iceland Growth Forum) á næsta fundi sínum.
Telur Sigurjón ekki veita af slíkri umræðu, „enda miða þessar tillögur fyrst og fremst að því að leggja enn frekar niður stofnanir í hinum dreifðu byggðum.“ Sigurjón nefnir sem dæmi tillögur um fækkun framhaldsskóla úr 33 niður í átta og heilbrigðisstofnana úr sextán niður í sjö. „Ég velti fyrir mér hvernig menn ætla að stýra aðgerðum í slíku umhverfi,“ sagði Sigurjón í samtali við Feyki í morgun.
Hagvaxtartillögurnar og störf Samráðsvettvangs um aukna hagsæl má kynna sér á vefsíðunni http://samradsvettvangur.is/.