Vill að komið verði til móts við óskir heimamanna
Kerfisáætlun Landsnets 2015 til 2024 var til umfjöllunar á fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar sl. miðvikudag. Í kerfisáætluninni er gert ráð fyrir tveimur framkvæmdum á umræddu tímabili í sveitarfélaginu, Blöndulínu 3, 220 kV lína frá Blöndu til Akureyrar og ný 66 kV lína frá tengivirkinu í Varmahlíð á Sauðárkrók. Eru báðar þessar framkvæmdir á áætlun árið 2018.
Blöndulína 3 hefur verið afar umdeild en skemmst er að minnast þess að í síðasta mánuði var haldinn var opinn fundur í Varmahlíð þar sem landeigendur gáfu skýrt fram að þeir myndu aldrei samþykkja lagningu loftlínu um lönd sín. Byggðarráð undirstrikar mikilvægi þess að taka tillit til sjónarmiða heimamanna og vilja skoða hvort og með hvaða hætti hægt sé að koma til móts við þá.
„Hvað varðar Blöndulínu 3 er ljóst að línan er mikilvægur þáttur í að styrkja flutningskerfið á Norðurlandi enda núverandi flutningskerfi komið að þolmörkum. Við lagningu Blöndulínu í gegn um Skagafjörð vill byggðarráð benda á að mikilvægt er að taka tillit til sjónarmiða heimamanna og skoða hvort og þá með hvaða hætti hægt sé að koma til móts við kröfu um línulögn í jörð á hluta leiðarinnar. Byggðarráð vill hnykkja á því að skipulagsvald er í höndum sveitarfélagsins,“ segir í fundargerðinni.
Einnig kemur fram að byggðarráð fagni því að styrkja eigi tengingar inn á Sauðárkrók enda beri sú lína sem fyrir er ekki meiri orku og er þar að auki eina línan sem tengir Sauðárkrók við dreifikerfið. Það er sagt ekki vera boðlegt og hafi valdið verulegu fjárhagstjóni fyrir fyrirtæki á svæðinu. Byggðarráð óskar þess að þeirri framkvæmd verði flýtt sem kostur er í áætlunum Landsnets.