Villt þú vera með á Sveitasælu?
Skagfirskir bændur og Reiðhöllin Svaðastaðir við Sauðárkrók blása til landbúnaðarsýningar og bændahátíðar í Skagafirði þann 20. ágúst nk. Þar mun margt fróðlegt og skemmtilegt bera fyrir augu manna. Má þar nefna sveitamarkað, vélasýningu skagfirskra bænda og vélasala, húsdýragarð, leiktæki fyrir börn, kynningu á fyrirtækjum tengdum landbúnaði og margt fleira.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í SveitaSælu er bent á að hafa samband við framkvæmdastjóra hátíðarinnar Eyþór Jónasson í síma 842 5240 eða senda póst á svadastadir@simnet.is
Verðskráin:
Sveitamarkaður / handverksmarkaður kr. 5.000.- borðið er 70x280 cm.
Sýningarsvæði á gólfi kr. 6.000.- fermetrinn með rafmagni og netsambandi.
Útisvæði kr. 300.- fermetrinn
Ath. öll verð eru fyrir utan vsk.