Villt þú vinna á frístundasviði?

Eitt af fyrstu verkum nýs yfirmanns íþróttamannvirkja í Skagafirði er að svara fyrir umsóknir um störf á frístundasviði sumarið 2011. Ýmis störf eru laus til umsóknar svo sem verkefnastjóri Sumar T.Í.M, flokkstjórastöður og hópsstjóra stöður.

Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:

Verkefnisstjóri Sumar T.Í.M – Tímabil 1.apríl til 31. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera eldri en 22 ára, hafa mikinn áhuga að starfa með börnum, menntun og/eða reynslu á uppeldissviði og mjög ríka skipulagshæfileika. Mikilvægt er að umsækjandi geti komið til starfa við skipulag og undirbúning sem fyrst og að fullu frá 1. maí.

Hópstjórar Sumar T.Í.M.,- Tímabil 23. maí til 15. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera eldri en 18 ára og hafa mikinn áhuga á að starfa með börnum. Reynsla og menntun á uppeldissviði er kostur.

.

Flokksstjórar Vinnuskóla: Tímabil 23. maí til 15. ágúst eða 31. ágúst.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 20 ára aldri og vera færir um að stýra vinnuskólahópi, hafa reynslu, verkvit og áhuga á að vinna með og fræða unglinga. Vera sjálfstæðir og góðar fyrirmyndir. Þekking á staðháttum í sveitarfélaginu er einnig nauðsynleg. Reynsla og menntun á uppeldissviði er kostur.

Vinnuskóli 16-18 ára (V.I.T.) leitar eftir fyrirtækjum sem vilja vera í samstarfi við okkur sumarið 2011 vegna átakverkefnis sem ætlað er að efla atvinnu 16-18 ára unglinga í Skagafirði. Nánari upplýsingar hjá Ivano í síma 6604634 eða ivano@skagafjordur.is

Sumar T.Í.M. leitar eftir góðu fólki sem vill halda námskið í sumar fyrir börn 6-12 ára, eina viku í senn. Skilyrði er að fólk hafi góða þekkingu á því sem það ætlar að leiðbeina með og kunni að umgangast börn. Nánari upplýsingar hjá tim@skagafjordur.is

Starfsmenn Íþróttamannvirkja.Sumarafleysingastörf í sundlaugum, íþróttahúsi og íþróttavelli í vaktavinnu frá 1.júní til 31. ágúst. Umsækjendur þurfa að vera eldri en 18 ára, starfsreynsla á sviðinu er kostur og haldgóð þekking í skyndihjálp en umfram allt framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.

Upplýsingar veitir Ótthar, umsjónarmaður íþróttamannvirkja í síma 6604635 eða netfangið otthar@skagafjordur.is

Fleiri fréttir