Viltu reka sundlaug í sumar

Á heimasíðu Skagafjarðar er leitað eftir þjónustuliprum, ábyrgum og áhugasömum rekstraraðila fyrir sundlaugina að Sólgörðum í Fljótum frá 1. júní fram að skólabyrjun í ágúst. Eigandi mannvirkisins er Sveitarfélagið Skagafjörður sem greiðir annan rekstrarkostnað en laun.

Á heimasíðu Skagafjarðar segir; „ Fljótin eru ein af perlum Skagafjarðar, mikil náttúrufegurð og gott mannlíf. Fljótin hafa góða tengingu við Fjallabyggð með göngum til Siglufjarðar og vegi yfir Lágheiðina til Ólafsfjarðar. Búast má við miklum ferðamannastraumi þangað í sumar eftir að göngin um Héðinsfjörð voru opnuð. Áhugasamir eru beðnir um að snúa sér til Ótthars Edvardssonar, umsjónarmanns íþróttamannvirkja í Skagafirði annaðhvort í síma 6604635 eða á netfangið otthar@skagafjordur.is“

Fleiri fréttir