Vinabæjarmót í Kongsberg í maí
Á fundi byggðaráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 19. Mars sl. var lagt fram boðsbréf frá vinabæ Sveitarfélagsins Skagafjarðar í Noregi, Kongsberg, vegna vinabæjamóts dagana 18. og 19. maí 2015.
Umfjöllunarefni mótsins verður þróun atvinnulífs. Hvernig getur sveitarfélagið stutt við fyrirtæki í heimabyggð til vaxtar? Tæknigarðar og nýsköpun verða hluti af þema. Einnig verður fjallað um æskulýðsstarf á vegum sveitarfélaga og frjálsra félagasamtaka.
Einn hluti af þessu þema varðar eftirfylgni með æskulýðsverkefni sem stýrt er af Esbo. Annar hluti snýr að því hvernig á að efla virkni unglinga til heilbrigðra lífshátta og þátttöku í íþróttum og hvernig á að virkja samfélagið s.s. samtök, íþróttafélög og sjálfboðaliða.
Í lok febrúar var samþykkt að Skagafjörður tæki þátt í mótinu. Samþykkti byggðarráð þá að fulltrúar á mótinu yrðu byggðarráðsfulltrúar, sveitarstjóri og fulltrúi eða fulltrúar viðkomandi sviða, sem tengjast málefnum mótsins.