Vinningshafinn í naglalökkunarleik Fröken Fabjúlöss er.....

...... Guðbjörg Óskarsdóttir Arionbankatútta!!!!!!

Svo fallegar voru neglurnar allar sem sendar voru inn að Fröken Fabjúlöss gat ekki valið á milli og ákvað því að fara diplómatísku leiðina, prenta út myndirnar og draga úr skál! Fékk ritstjóri Feykis heiðurinn af því að draga út vinningshafann og var Guðbjörg sú heppna sem dregin var út! Myndirnar sem sendar voru inn í keppnina má sjá hérna fyrir neðan, Fröken Fabjúlöss þakkar ástsamlega fyrir þátttökuna og hlakkar til að sjá þátttökuna í næsta leik sem mun fara af stað von bráðar :)

Við hérna í heimsveldi Fabjúlössmans óskum Guðbjörgu hjartanlega til hamingju með vinninginn sinn og treystum því að hún eigi eftir að láta til sín taka í naglalökkun ýmisskonar í framtíðinni!

Fleiri fréttir