Vinnuvélar Símonar og Steinullarverksmiðjan framúrskarandi fyrirtæki

Á dögunum var fjórum fyrirtækjum  veitt viðurkenning frá Creditinfo sem staðfestir að fyrirtækin flokkist sem framúrskarandi fyrirtæki en þau voru Alcan, CCP, Össur og Stálskip. Tvö fyrirtæki á Sauðárkróki voru meðal 177 framúrskarandi fyrirtækja landsins.

Creditinfo hefur unnið að ítarlegri greiningu  sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins.  Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem Creditinfo setur til að fá viðurkenningu sem  framúrskarandi fyrirtæki og þeirra á meðal voru tvo fyrirtæki á Sauðárkróki, Vinnuvélar Simonar Skarphéðinssonar og Steinullarverksmiðjan.

Við valið voru síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja lagðir til grundvallar og þurftu þau meðal annars að sýna fram á jákvæðan rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Sömuleiðis máttu eignir aldrei vera undir 100 milljónum og eiginfjárhlutfall aldrei minna en 20%. Einnig þurftu fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati Creditinfo.

Creditinfo vill með þessari viðurkenningu vekja athygli á fyrirtækjum sem skara fram úr í viðskiptum og geta verið fyrirmynd annarra fyrirtækja sem vilja ná góðum árangri.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir