Vinnuvökubasar á sunnudag
Samband skagfirskra kvenna hefur um árabil staðið fyrir Vinnuvöku til fjáröflunar vegna ýmissa aðkallandi verkefna. Í ár verður Vinnuvökubasarinn haldinn sunnudaginn 3. apríl í Varmahlíðarskóla og að þessu sinni er safnað í Utanfarasjóð sjúkra. Markmið sjóðsins er að styðja einstaklinga, sem þurfa að leita lækninga erlendis og fjölskyldur þeirra. Allir vita að alvarleg veikindi hafa ekki aðeins áhrif á líðan fólks heldur einnig efnahag. Það er því þörf og vilji í samfélaginu til að styðja einstaklinga í þessum aðstæðum.
Fyrr á tímum mættu kvenfélagskonur að kvöldi og vöktu yfir vinnu við muni og bakstur, sem seldur var á Vinnuvökubasarnum daginn eftir. Í seinni tíð fer vinnan fram heima við en afraksturinn getur fólk keypt – ásamt góðu kvenfélagskaffi á sunnudagseftirmiðdegi. Í ár verður sú hefð að vinna á Vinnuvökunni endurvakin. Kvenfélagskonur hyggjast prjóna værðarvoð með aðstoð gesta, sem geta í leiðinni fengið tilsögn um mismunandi aðferðir við að fitja upp, auka í , taka úr og fella af.
Ágóðinn af basarnum hefur runnið til fjölbreyttra verkefna og málefna í Skagafirði s.s. uppbyggingar sjúkrahússins, safnanna, sambýla fatlaðra, tónlistarskólanna, handmenntakennslu í grunnskólum, björgunarsveitanna og reiðþjálfunar fatlaðra. Samband skagfirskra kvenna býður alla velkomna til Vinnuvökunnar að leggja góðu málefni lið og eiga góða samverustund.
Vinnuvökunefndin