Vírus hrellir notendur Facebook

Notendur Facbook eru nú í hættu á því að tölvur þeirra sýkist af vírus sem vinnur sig áfram í gegnum tölvupóstasamskipti. Á Mbl.is segir að vírusinn virki þannig að notendur fá tilkynningu gegnum tölvupóst um að þeir hafi verið merktir á mynd. Um leið og pósturinn er opnaður reynir vírusinn svo að sýkja tölvuna.

Margir munu ekki gera sér grein fyrir því að þeir hafi verið fórnarlömb árásanna en notendur samskiptasíðunnar geta séð hvort skilaboðin séu raunveruleg eða ekki, því Facebook er stafað „Faceboook“ í tölvupóstinum eða með þremur o-um. Fólk er varað við öllum tilkynningum frá Facebook í gegnum tölvupóst sem tilkynnir að það hafi verið merkt á mynd.

Sjá nánar á Mbl.is

Fleiri fréttir