Vísindi og grautur á morgun

Á morgun miðvikudag verður í Hólaskóla sá viðburður sem kallaður hefur verið  Vísindi og graut haldinn þar sem Ingibjörg Sigurðardóttir, lektor við ferðamáladeild skólans mun flytja erindið Hestamennska á Norðurlandi vestra: Mikilvæg atvinnugrein?

Í erindinu fjallar Ingibjörg um hestamennsku og hestatengda þjónustu. Leitað er svara við því hvort hestamennska sé atvinnugrein og hver sérkenni greinarinnar séu. Rýnt er í fyrstu niðurstöður yfirstandandi rannsóknar á umfangi og eðli hestamennsku á Norðurlandi vestra. Skoðaðar eru tölur um umfang ákveðinna þátta hestamennskunnar og rýnt í vísbendingar um ímynd, styrkleika og veikleika greinarinnar á svæðinu. Umrædd rannsókn er forverkefni fyrir sambærilegt stærra verkefni á landsvísu og verða næstu skref rannsóknarinnar kynnt.

Fleiri fréttir