Vítamín fyrir neglurnar
Fröken Fabjúlöss hefur undanfarna mánuði verið að glíma við ákveðið vandamál í sambandi við neglurnar á sér. Vandamálið lýsir sér þannig að neglurnar voru frekar uppteknar af þeim bisness að klofna, sama hversu svakalegt nostur, fifferí, pússerí og ást fór í viðhaldsvinnuna, og var langt því frá að klærnar litu vel út án naglalakks.
Var Frk. Fab búin að reyna allt til að snúa við þessari leiðu þróun, jafnvel lagði hún það á sig að sitja heilt kvöld og nudda kókosolíu á neglurnar og svæðið í kring áður en hún pússaði en allt kom fyrir ekki!
Svo var það einn daginn fyrir svona sirka 3 vikum að Frk. Fab var að kaupa sér vítamín í Skagfirðingabúð sem er ekki í frásögur færandi nema síður sé! Rekur hún þá glyrnurnar í pakka sem á stendur "Silica". Reyndar hafði Frökenin brúkað þessa snilld fyrir mörgum árum, en stóð einhverra hluta vegna í þeirri meiningu að þetta fengist ekki lengur! Silica er sumsé vítamín fyrir húð, hár og neglur og kostar pakkinn með 120 töflum litlar 998.- krónur í Skagfirðingabúð.
Frk Fab var ekki lengi að hrifsa með sér pakkann, arkaði heim og klippti neglurnar niður fyrir klofning og byrjaði svo að bryðja vítamínið eins og smartís og sjá! Ekki voru dagarnir margir liðnir þegar Fökenin fann verulegann mun á nöglunum á sér og núna skartar hún fallegum og hraustlegum klóm :)
Við hérna í heimshorni Fabjúlössmans mælum eindregið með Silica ef neglurnar láta leiðinlega! Ódýrt og virkar fljótt og vel!
Svo viljum við hérna í tískhorni veraldarinnar minna á förðunarleikinn góða sem er í fullum gangi! Dregið verður úr honum mánudaginn 12. Nóvember!