Vögguljóðatónleikar Kammerkórsins
Kammerkór Norðurlands heldur Vögguljóðatónleika á allraheilagramessu í Sauðárkrókskirkju sunnudaginn 4. nóvember nk. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Þetta er þriðja árið í röð sem kórinn flytur þessa efnisskrá, og eru vögguljóð á allraheilagramessu að verða fastur liður í starfsemi kórsins.
Eins og yfirskriftin ber með sér samanstendur prógrammið af íslenskum vögguljóðum, nýjum og gömlum, sígildum perlum sem og minna þekktum gimsteinum. Tilgangurinn er að laða samferðafólk inn úr kulda og streitu, inn í vin kyrrðar, hlýju og rökkurs þar sem tækifæri gefst til að nema staðar og minnast látinna ástvina.
Allraheilagramessa (1. nóvember) og allrasálnamessa (2. nóvember) eru fornir hátíðisdagar í kirkjuárinu og hafa orðið að einu í hugum fólks; allraheilagramessa var upphaflega tileinkuð minningu þeirra sem styrkt hafa kristnina, trúarhetjum og dýrlingum en allrasálnamessu var komið á síðar, svo sálir fátækara fólks fengju sérstakan tilhugsunardag. Á Íslandi var allrasálnamessa einnig þekkt sem sálnadagur; þennan dag var beðið fyrir sálum framliðinna ástvina.
Lögð er áhersla á að skapa hlýja og kyrrláta rökkurstemningu, magnaða töfrum íslenskra vögguljóða.
Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Miðaverð 2000 kr.; ekki tekið við greiðslukortum