Völlurinn í lag fyrir Landsbankamót

Stefnt er að því að halda Landsbankamótið helgina 29. – 30. júní 2013 á Sauðárkróki, að sögn Ótthars S. Edvardssonar, forstöðumanns íþróttamannvirkja í Skagafirði.

Völlurinn er í slæmu ásigkomulagi eftir veturinn en vonast er til að hann verði orðinn nothæfur fyrir mótið. ,,Það er mánuður í mótið sem við verðum að nýta vel í undirbúning á vellinum”, segir Ótthar.

Landsbankamótið er fyrir stelpur í 7., 6. og 5. flokki í knattspyrnu.

Fleiri fréttir