Vormót Molduxa 2013
Ákveðið hefur verið að hið árlega vormót Molduxa fyrir 40 + ( ár, ekki kíló ) og eldri , verði haldið laugardaginn 20 apríl nk. í íþróttahúsinu á Sauðárkróki (Síkinu). Allir sem vettlingi geta valdið og hangið saman í hóp eru hvattir til að skrá lið til keppni.
„Takið þessa helgi frá og mætum með góða skapið og keppnisandann í lagi,“ segir á heimasíðu Molduxa.
Allar upplýsingar og skráningar eru hjá Alla Munda í síma 453 6687 / 865 0819 og allimunda@internet.is