Vormót Molduxa í dag

Í dag klukkan 13:00 að staðartíma hefst árlegt Vormót Molduxa í körfubolta en þá reyna fullorðnir karlmenn með sér í þessari göfugu íþrótt í Síkinu á Sauðárkróki. Alls eru átta lið skráð til leiks víða að af landinu. Aðdáendur körfuboltans eru hvattir til að líta í íþróttahúsið og sjá gamlar kempur sýna tilþrif sem ekki sjást annarsstaðar.

Í kvöld verður svo snæddur kvöldverður á Mælifelli og eflaust skemmt sér á eftir.

Hér fyrir neðan er riðlaskipting og tímaplan. Smellið á myndina til að stækka hana.

 

Sjá nánar Molduxar.is.

Fleiri fréttir