Vorstarfið komið í fastar skorður
Fyrstu tónleikar Skagfirska kammerkórsins eru fyrirhugaðir í Kakalaskála í Kringlumýri sumardaginn fyrsta eða 25. apríl kl.16:00. Söngdagskráin inniheldur vorljóð og kvæði víðs vegar að.
Á heimasíðu Kammerkórsins segir að vorstarfið hjá kórnum sé komið í fastar skorður og gengur mjög vel. „Að venju er mikið fjör á æfingum hlegið hátt og ýmislegt til gamans gert, því eins og segir þá er „maður manns gaman“. Helga Rós söngstýran okkar hefur alveg ótrúlegt lag á að láta okkur vinna, en ekki getur það nú alltaf verið einfalt með alla þessa stuðpúða innanborðs,“ segir á síðunni.