Vortónleikar Lóuþræla
Karlakórinn Lóuþrælar heldur vortónleika sína í félagsheimilinu á Hvammstanga á laugardaginn kemur, 28. apríl, og hefjast þeir kl. 21:00.
Söngstjóri er Ólafur Rúnarsson og undirleik annast Elinborg Sigurgeirsdóttir. Einsöngvarar með kórnum eru Friðrik M. Sigurðsson, Guðmundur Þorbergsson og Skúli Einarsson. Dagskráin verður fjölbreytt að vanda.
Aðgangseyri er 3.000 kr. en frítt er fyrir 14 ára og yngri. Ekki er tekið við greiðslukortum.