Walker gekk yfir Stólana í fjörugum leik
KR-ingar sigruðu Tindastól í fjörugum og æsispennandi leik í Síkinu í kvöld og var það einkum fyrir algjöran stórleik Marcusar Walker en Stólunum gekk fjári illa að verjast honum. Stólarnir höfðu yfirhöndina mestallan fyrri hálfleik og leiddu 49-48 í hálfleik en Walker hóf síðari hálfleik með því að setja niður tvo þrista og eftir það leiddu KR-ingar nánast allan tímann. Eftir dramatík í lokin tryggðu gestirnir sér sigur, 82-85.
Á upphafsmínútum leiksins var hraðinn mikill og liðinum gekk vel að koma boltanum í körfuna. Cunningham gerði nokkrar laglegar körfur og Tindastólsmenn virtust vel stemmdir. KR-ingar komust þó yfir upp úr miðjum fyrsta leikhluta og gekk þeim vel að stinga niður boltanum af 3ja stiga færum. Stólarnir voru þó yfir, 25-22, að loknum fyrsta leikhluta. Í öðrum leikhluta hrökk Walker í gang svo um munaði. Lá við að kappinn sæi einn um stigaskorið hjá KR og var í raun unun að sjá til kappans sem var gríðarlega snöggur og lipur og lagði boltann í körfuna hvað eftir annað eftir glæsileg gegnumbrot og ekki var hann mikið síðri í skotunum. Fain gerði sitt til að búa til hressilegt einvígi þeirra á milli og sýndi góða takta. Staðan í hálfleik 49-48.
KR-ingar komu grimmir til leiks í síðari hálfleik og Walker gerði í upphafi tvær 3ja stiga körfur og KR með 5 stiga forskot. Sá munur hélst nánast út leikhlutann en bæði lið hertu vörnina og spennustigið magnaðist. KR-ingar sigruðu leikhlutann 14-22 og leiddu fyrir fjórða leikhluta 63-70. Tindastólsmenn náðu upp góðri baráttu í fjórða leikhluta og gerðu fyrstu 9 stigin og höfðu því náð forystu, 72-70. KR-ingar voru þó fljótir að ná áttum og næstu mínútur var allt í járnum og bæði lið frekar ósátt við dómara leiksins. Þegar um 4 mínútur voru eftir náðu gestirnir 4-5 stiga forystu og þrátt fyrir grimma vörn Helga Rafns á lokamínútunum tókst Stólunum ekki að jafna leikinn. Þegar um 20 sekúndur misstu KR-ingar boltann og munurinn þrjú stig, 80-83. Fain fékk boltann í sókninni en tapaði honum þegar hann hljóp með boltann inn í vörn KR, Walker brunaði upp völlinn og jók muninn í 5 stig. Helgi Rafn gerði svo síðustu stig Stólanna á lokasekúndunni og lokatölur því 82-85.
Sem fyrr segir var leikurinn skemmtilegur og hraður og góð barátta í leikmönnum. KR-ingar fóru langt á breiddinni að venju en það var þó einkum fyrir stjörnuleik Walkers sem þeir hömpuðu sigri í kvöld en kappinn gerði 38 stig. Pavek Ermolinskij var heillum horfinn í stigaskorinu, gerði aðeins 3 stig í leiknum og kætti áhorfendur með 3ja stiga skotum sínum en þrjú þeirra voru talsvert frá því að hitta hringinn. En hann hirti 7 fráköst og átti 5 stoðsendingar þannig að ekki var kappinn alveg liðónýtur. Brynjar Þór Björnsson átti ágætan leik.
Hjá Stólunum var Fain í aðalhlutverki en heldur dró af kappanum í fjórða leikhluta. Hann gerði engu að síður 33 stig og tók 8 fráköst. Cunningham var einnig drjúgur með 18 stig og Helgi Rafn skilaði sínu, gerði 12 stig og stal 6 boltum. Tölfræðin gefur upp 4 fráköst á kappann en það hlýtur að vera tóm tjara - rétt eins og að lið KR sé talið hafa tekið 1 sóknarfrákast í leiknum! Kita var ekki að finna sig í kvöld og munar um minna. Þá voru þeir 3ja stiga frændur, Rikki og Svabbi, ekki að finna fjölina, settu hvor sína 3ja stiga körfuna í alls 13 tilraunum en léku engu að síður ágætlega.
Nú er ljóst að Stólarnir verða að girða sig duglega í brók ef þeir ætla að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni. Liðið er í níunda sæti þegar þrjár umferðir eru eftir og næstkomandi fimmtudag er algjör lykilleikur en þá sækja strákarnir Fjölni heim. Áfram Tindastóll.
Stig Tindastóls: Fain 33, Cunningham 18, Helgi Rafn 12, Rikki 9, Svabbi 7 og Kita 3.