Yfir þúsund selir taldir í Selatalningunni miklu
Selatalningin mikla var haldin í fimmta árið í röð í gær, sunnudagurinn 17. júlí. Í ár voru alls 1033 selir taldir á Heggstaðarnesi og Vatnsnesi og eru það heldur færri en í fyrra því þá var niðurstaðan 1057 selir. Eins og fyrri ár var talningin framkvæmd af sjálfboðaliðum ásamt starfsfólki Selasetursins.
Í ár tóku um 30 manns þátt í að telja seli á 27 svæðum og fóru þeir gangandi, á hesti og á bát. Að talningu lokinni var boðið upp á kaffi í á Selasetrinu. Sagt er frá þessu á vef Selasetursins á Hvammstanga en þar er öllum talningarmönnum og aðstoðarmönnum þakkað kærlega fyrir hjálpina með von um að sjá þá aftur að ári.