Yngra stigi leikskólans á Sauðarkróki lokað vegna veikinda starfsmanna

Sú óvenjulega staða blasti við stjórnendum leikskólans Ársala á Sauðárkróki og foreldrum þeirra barna sem dvelja á yngra stigi að ekki væri hægt að taka á móti börnum í morgun vegna veikinda starfsfólks. Tíu af fimmtán starfsmönnum yngra stigsins tilkynntu um veikindi og ljóst er að hann verður alveg lokaður í dag. Að sögn Herdísar Sæmundardóttur fræðslufulltrúa Svf. Skagafjarðar verður reynt eftir fremsta megni að leysa úr starfsmannamálum þannig að hann verði opinn á morgun.

Herdís segir að veikindi starfsfólks væru einnig á eldra stigi, þó í minni mæli og því var ekki hægt að færa til starfsmenn þaðan til að leysa af á yngra stiginu. Flest börnin á yngra stiginu eru mjög ung, 24 þeirra fædd árið 2010 og verða því 2ja ára á þessu ári og 24 börn eru fædd árið 2011 og verða því eins árs á þessu ári.

Að sögn Herdísar er henni ekki kunnugt um að þessi staða hafi komið upp áður á leikskólum í Skagafirði þó hún vilji ekki fullyrða um það.

-Það er vissulega afar óvenjulegt að svo margir séu veikir á sama tíma. Það er líka afar óvenjulegt að boðið skuli upp á leikskólavistun fyrir svo ung börn eins og raun ber vitni og tíðkast ekki víða á landinu. Í ljósi þessa unga aldurs barnanna er afar erfitt að bregðast við svona miklum veikindum. Það er t.d. ekki forsvaranlegt að ætla einum starfsmanni að annast fleiri börn en sem nemur þeim viðmiðunum sem við styðjumst við þegar við ákveðum fjölda starfsmanna, segir Herdís sem harmar það mjög að til þessa hafi þurft að koma. Segist hún gera sér vel grein fyrir þeim vanda sem lokun þessi kann að setja foreldra í. -Ég vonast sannarlega til að við þurfum ekki að standa frammi fyrir slíku ástandi aftur, segir hún.

Fleiri fréttir