Zidane taktar hjá Stólunum/Hvöt

Á heimasíðu Tindastóls segir að yfir 3700 manns hafi séð myndbandið af undanúrslitaleik Tindastóls/Hvatar gegn Völsungi í síðustu viku en þar er hægt að sjá magnaða takta sem kenndir eru við snillinginn Zinedine Zidane sem allir fótboltaunnendur þekkja.

Í leiknum voru skoruð 6 mörk í framlengingunni og líklega ein sú fljótasta ferna sem skoruð hefur verið í móti á vegum KSÍ, en Kolbeinn Kárason leikmaður Tindastóls/Hvatar skoraði fernu á 13 mínútum í framlengingunni.

Myndbandið er hægt að nálgast HÉR

Fleiri fréttir