Kjöri íþróttamanns USVH (Ungmennasambands Vestur-Húnavatnssýslu) var lýst í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga kl. 19,00 þann 27. des. Íþróttamaður USVH árið 2012 var kjörinn Ísólfur Líndal Þórisson Lækjamóti í Víðid...
Hljómsveitin Trukkarnir leggur í stæði á áramótaballi í Félagsheimilinu á Blönduósi og ætlar að gera allt vitlaust og sjá til þess að allir fari í dúndrandi stemmingu inn í nýtt ár. Það verður 16 ára aldurstakmark inn og ...
Á Norðvesturlandi er hálka og eitthvað um skafrenning. Hálkublettir og skafrenningur er á Þverárfjalli og þæfingur og stórhríð er á Öxnadalsheiði. Á heimasíðu Vegagerðarinnar kemur fram að él eða snjókoma verður víða í ...
Hið árlega jólaball Kvenfélags Bólstaðarhlíðarhrepps verður haldið í dag, fimmtudaginn 27. desember kl. 14:00 í Húnaveri. „Mætum nú öll í jólagírnum og höfum eitthvað góðgæti með í för til að setja á kaffiborðið,
Feykir.is minnir á að enn geta íbúar á Norðurlandi vestra kosið mann ársins sem tilnefndir voru af lesendum Feykis og Feykis.is. Í þetta skiptið fengu sjö aðilar tilnefningu til titilsins og sumir reyndar fleiri en eina og fleiri en t...
Brenna og flugeldasýning verða á sínum stað á gamlárskvöld á vegum Björgunarfélagsins Blöndu. Kveikt verður í brennunni klukkan 20:30 og hefst flugeldasýning skömmu síðar. Samkvæmt Húna.is er verið að safna styrktaraðilum a
Staðarskálamótið í körfubolta verður haldið í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga dagana 27. og 28. desember. Mótið hefst kl. 17:30 báða dagana og skráningar eru í síma: 865-2092 (Steini) eða 891-6930 (Dóri).
Skráningu l
Helgihald og athafnir um jólahátíðina í Breiðabólsstaðarprestakalli og Melstaðarprestakalli er sem hér segir:
Breiðabólsstaðarprestakall
25. desember.
Kapella sjúkrahússins. Jóladagur. Hátíðarmessa kl. 11:00.
Tjarnarkirkja. ...
Björgunarsveitir landsins eru afar hjálplegar þegar jólasveinarnir þurfa að komast á milli staða á aðfangadag en sá dagur er einkar annasamur eins og hjá mönnunum. Á Sauðárkróki þeyttust þeir Grýlusynir á milli húsa með pakk...
Við stöndum frammi fyrir mikilvægri þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29.ágúst. Niðurstaðan gæti varðað miklu um framtíð mína og minna og byggðarlagsins míns. Ég er bóndi og við fjölskyldan rekum býli á Brúnastöðum í Fljótum. Þar stundum við ýmiskonar starfsemi, erum með stórt sauðfjárbú á íslenskan mælikvarða, framleiðum nautakjöt og mjólkum geitur til að gera geitaosta. Við rekum einnig ferðaþjónustu og leggjum áherslu á að öll þessi verkefni styðji hvert annað. Við bjóðum gestum og gangandi að koma og kynna sér það sem við erum að gera og kaupa afurðirnar okkar.
Frá því að fyrstu fjárlög núverandi ríkisstjórnar tóku gildi um síðustu áramót hefur verðbólgan farið vaxandi og stýrivextir hækkað. Fram að því fóru vextir lækkandi á grundvelli fjárlaga síðustu stjórnar. Ríkisstjórnin hefur ítrekað tekið ákvarðanir frá áramótum sem hafa stuðlað að aukinni verðbólgu og hefur sama og ekkert gert til þess að forða því að kjarasamningar verði í uppnámi síðar í mánuðinum. Þvert á móti hefur hún haldið áfram í sumar að kynda undir verðbólgunni. Meðal annars með hækkun komugjalda á heilsugæzlustöðvar um 100%. Vanhæfni ein og sér getur ekki útskýrt framgöngu hennar.
Búið er að framlengja umsóknarfrest vegna Skúnaskralls – barnamenningarhátíðar Norðurlands vestra, en tekið verður við umsóknum til og með 24. ágúst.
Eins og vonandi öllum er kunnugt mun barnamenningarhátíðin Skúnaskrall fara fram dagana 21. október til 4. nóvember 2026 undir yfirskriftinni Öll saman. Hátíðin er haldin á vegum SSNV í góðu samstarfi við sveitarfélögin á Norðurlandi vestra og er markmið hennar að börn og ungmenni á svæðinu fái að njóta fjölbreyttrar og vandaðrar menningardagskrár í sínu nærumhverfi.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Þau leynast víða hæfileikabúntin og meira að segja á Kambastígnum á Króknum sem er nú ekki stærsti stígur í heimi! Þar hittir Tón-lystin fyrir Jakobínu Ragnhildi Valgarðsdóttur, rétt tæplega þrítuga söngkonu. Hún er alin upp á Sauðárkróki, dóttir Valla Valla og Valdísar Skarphéðinsdóttur. Jakobínu finnst kontrabassinn vera fallegasta hljóðfærið en sjálf getur hún spilað á píanó og ukulele. Hún segist ekki hafa unnið nein sérstök afrek á tónlistarsviðinu en hún lærði þó klassískan söng í Aachen í Þýskalandi.