Ísólfur Líndal íþróttamaður USVH 2012

Kjöri íþróttamanns USVH (Ungmennasambands Vestur-Húnavatnssýslu) var lýst í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga kl. 19,00 þann 27. des. Íþróttamaður USVH árið 2012 var kjörinn Ísólfur Líndal Þórisson Lækjamóti í Víðidal en hann hlaut 37 stig í kjörinu. Í öðru sæti varð Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona með 31 stig, í þriðja sæti Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir körfuknattleiks- og kraftlyftingakona  með 29 stig og í fjórða sæti Salbjörg Ragna Sævarsdóttir körfuknattleikskona með 24 stig.

Ísólfur hefur á undanförnum árum skipað sér í raðir bestu hestamanna landsins. Árið 2012 var honum farsælt á keppnisbrautinni og keppti hann á mörgum mótum með flottum árangri. Sökum þessa góða árangurs var hann valinn knapi ársins hjá hestamannafélaginu Þyt. Helstu afrek Ísólfs á árinu eru þessi.

Ísólfur komst í A-úrslit á Landsmóti hestamanna í B-flokki og endaði í 6. sæti.

Á Íslandsmóti í hestaíþróttum komst hann einnig í A-úrslit í fjórgangi og endaði þar í 5. sæti, og í tölti lenti hann í 8. - 9. sæti.

Í Húnvetnsku liðakeppninni sigraði Ísólfur fjórgang og fimmgang, varð í 2. sæti í tölti og stigahæsti knapi mótaraðarinnar.

Í meistaradeild Norðurlands sigraði Ísólfur fjórgang, varð í 4. sæti í fimmgangi, 9. sæti í tölti, 6. sæti í slaktaumatölti og í 4. sæti samanlagt yfir mótaröðina.

Á Bautatölti á Akureyri varð Ísólfur í 3. sæti í tölti og á Þytsheimatölti á Hvammstanga endaði hann í 1. sæti.

Á  Íþróttamóti Skugga í Borgarnesi sigraði Ísólfur bæði tölt og fjórgang.

Á vormóti Þyts sigraði Ísólfur bæði tölt og fjórgang og varð annar í fimmgangi.

Á gæðingamóti Þyts og úrtöku fyrir Landsmót sigraði Ísólfur tölt og B-flokk og endaði í 3. sæti í A-flokki.

 

Íþróttamenn USVH geta orðið þeir íþróttamenn 16 ára og eldri sem lögheimili eiga í Húnaþingi vestra eða keppa undir merkjum félaga innan USVH. Það eru stjórnarmenn í aðildarfélögum USVH og stjórn USVH sem kjósa íþróttamanninn.

Fleiri fréttir