Staðarskálamótið 2012
Staðarskálamótið í körfubolta verður haldið í íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga dagana 27. og 28. desember. Mótið hefst kl. 17:30 báða dagana og skráningar eru í síma: 865-2092 (Steini) eða 891-6930 (Dóri).
Skráningu lýkur á morgun, 26. desember, og hægt verður að sjá uppröðun leikja og tímasetningu á heimasíðunni usvh.is á mótsdegi.
„Nefndin minnir á að það á ekki að vera að svamla í áfengum drykkjum á meðan þessi helgistund stendur yfir,“ segir á Norðanátt.is.
U.S.V.H. mun heiðra íþróttamann ársins á fyrri keppnisdeginum um klukkan 19:00.